Aldur: Dömustærð (vettlingarnir eru frekar háir upp)
Prjónar: Sokkaprjónar
nr 5
Garn: Léttlopi, einn
dokka ljósgrá og ein dokka dökkgrá
Uppskrift:
Fitjið
upp 32 lykkjur með dökkgráa garninu á
prjóna nr. 5 og prjónið stroff 1 slétt, 1 brugðin lykkja.Tengið í hringog prjónið 6 cm stroff. Að því loknu er prjónað slétt prjón.
Prjónið 6 umferðir slétt prjón.
Þá
er komið að munstri.
o
er dökkgrár, x er
ljósgrár
Munstrið nær yfir 3 lykkjur
Þessar 9 umferðir (6 umferðir slétt prjón og 3 umferðir munstur) mynda
munstrið.
Prjónið svona áfram þar
til allt stykkið mælist 15 cm. (Ef vilji er til að stytta vettlingana er hægt að prjóna færri cm hér.)
Merkt fyrir þumli:
Nú er prjónað með öðru
bandi fyrir þumlinum þannig:
Prjónið 11 lykkjur, prjónið núna 7 lykkjur með
öðru bandi, færið lykkjurnar til baka á fyrri prjóninn og prjónið lykkjurnar
sem eru með öðru bandi með lopanum og haldið áfram með vettlinginn.
Prjónið þar til
vettlingurinn mælist 26 cm. Þá er komið að úrtöku.
Úrtaka:
Prjónið 3 lykkjur , síðan 2 lykkjur saman
allan hringinn.
Prjónið 2 umferðir án
úrtöku.
Prjónið þá 2 lykkjur og
síðan 2 lykkjur saman allan hringinn.
Prjónið 2 umferðir án úrtöku.
Prjónið nú 1 lykkju og
síðan 2 lykkjur saman allan hringinn.
Prjónið 2 umferðir.
Slítið bandið frá og þræðið það í gegn um lykkjurnar sem eru eftir.
Þumall:
Nú þarf að rekja upp
bandið sem var notað til að prjóna þumallykkjurnar. Þegar það er búið eru 7 og
6 lykkjur sem þarf að setja á prjóna. Nú er þumallinn prjónaður og mér finnst
ágætt að taka upp 1 lykkju í hvoru viki svo ekki myndist gat þar. Það eiga því
að vera 15 lykkjur á prjóninum.
Prjónið 15 umferðir.
Prjónið þá 2 lykkjur
saman allan hringinn 2 umferðir.
Slítið þá bandið frá og
dragið í gegn um lykkjurnar.
Prjónið annan vettling
alveg eins. Þetta er kosturinn við úrtökuna sem ég nota á vettlingnum. Vettlingarinir
passa á hvora höndina sem er og það er engin hætta á að prjónaðir verði 2 vettlingar
á sömu hendi (ótrúlega súrt þegar maður gerir það, ég kannast við það)
Frágangur:
Gangið frá öllum endum.
Mér finnst gott að þvo
lopa úr sjampói og hárnæringu til að mykja ullina fyrir notkun.