Stærð:
8-10 ára, (kvenstærð)
Prjónar nr. 6
Garn: Semilla grosso frá Litlu prjónabúðinni
Munstur: Klukkuprjón.
Þetta myndband á youtube sýnir vel hvernig á
að prjóna klukkuprjón http://www.youtube.com/watch?v=gtLaQ9aN1MM
.
Munstrið er prjónað á
eftirfarandi hátt:
1. umferð: Takið 1 L óprjónaða
slétt af prjóninum (þetta er kanntlykkja og er alltaf tekin óprjónuð), * prjónið
1 slétta L, sláið bandi yfir prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða fram af
eins og um brugðna lykkju væri að ræða*. Endurtakið frá * - * að síðustu lykkjunni.
Síðasta lykkjan er kanntlykkja eins og sú fyrsta og er alltaf prjónuð slétt.
2. umferð: Takið 1 L óprjónaða slétt af prjóninum (kantlykkja),
* sláið bandið yfir prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna
lykkju, prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *. Endurtakið frá * - *
að síðustu lykkjunni. Prjónið hana slétta.
Þessar tvær umferðir eru
endurteknar.
Eyrnaband: Fitjið upp 17 (19) L á prjóna nr. 6.
Fyrsta og síðasta lykkjan eru kanntlykkjur. Í byrjun prjóns er fyrsta lykkjan tekin
óprjónuð fram af prjóninum og í lokin er síðasta lykkjan prjónuð slétt. Prjónið
klukkuprjón þar til stykkið mælist 42 (46) cm. Fellið af eða geymið lykkjurnar.
Band: Fitjið upp 9 lykkjur. Prjónið 12
umferðir slétt yfir allar lykkjurnar (slétt á réttunni, brugðið á röngunni).
Geymið lykkjurnar (ekki fella af).
Frágangur: Saumið eða lykkið eyrnabandið saman.
Leggið bandið yfir sauminn á eyrnabandinu, slétta prjónið út, og lykkið saman
þannig að bandið fer í hring utan um sauminn á eyrnabandinu og dregur það
saman. Mér fannst betra að lykkja bandinu saman til að minnka þykktina framan á
því.
Orðskýringar:
Prj = prjónið
Nr. = númer
L = lykkjaEf eitthvað er óljóst í uppskriftinni, sendið mér endilega póst eða skrifið athugasemd svo ég geti lagað hana.
Hæ
ReplyDeleteVá hvað síðan þín er orðin flott. Alltaf gaman að skoða það sem þú gerir. Bókin sem þú talar um Yarn harlot, er þetta nokkuð Prjónaklúbburinn á ensku?
kveðja
Guðný
Takk fyrir hrósið. Bókin er ekki Prjónaklúbburinn heldur er eftir konuna sem bloggar sem yarn harlot og eru þetta prjónasögur frá henni.
DeleteHey, kom linkur inna faersluna a facebook. Snilld. P.s. flott eyrnaband :)
ReplyDeleteKv.olof
Takk.
ReplyDeleteThank You and I have a neat offer: How Long Do House Renovations Take home renovation victoria
ReplyDelete