Sýnir færslur með efnisorðinu patchwork. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu patchwork. Sýna allar færslur

sunnudagur, 18. maí 2014

Endurvinnsla

 Kisan á heimilinu hefur valið sér stól sem uppáhaldsstól. Vandamálið er að hann er líka uppáhaldið mitt. 
The cat in the household has selected a chair in our home as a favorite chair. The problem is that, that same chair is also my favorite.
 Stólinn var því ansi oft hlaðinn kattarhárum þegar ég ætlaði að setjast í hann.
That chair was therefore pretty often loaded with cat hair when I was going to sit in it.
 Lausnin var sú að sauma lítil teppi úr gömlum gallabuxum og nota sem ábreiðu á stólinn.
The solution was to sew a little quilt from old jeans to use as a blanket on the chair.
Núna þegar ég ætla að setjast í stólinn, þá þarf ég bara að taka ábreiðuna af stólnum og hann er tilbúinn fyrir mig. Þar sem ég gerði 2 þá get ég alltaf hent annari í þvott og notað þá sem er hrein. Tær snilld sem ég var dáldið lengi að fatta.
Now that I'm going to sit in the chair, I just have to take the quilt of the chair and it's ready for me. Since I did 2, I can always put one in the washing machine and use the clean one on the chair. A stroke of genius that took me long time to get.
Í lokin er hér mynd af litlu frænku minni í peysu sem ég prjónaði handa henni. Ég þarf að drífa mig í að skrifa uppskriftina og birta hana á síðunni.
Finally, here is a picture of my little niece in the sweater I knitted for her. I need to find some time to write the pattern and publish it on this page.

sunnudagur, 12. maí 2013

Endurvinnsla - recycling

Í dag er heimilið frekar illa statt því ég er farin að sjá hráefni úr allt of mörgu sem fellur til á því.
Today my home is in rather difficult condition because I'm starting to see everything as a material to make something out of.

Það þýðir að ég hendi allt of litlu og geymi því of mikið t.d. af fötum sem eru komin úr tísku eða orðin of lítil eða slitin.
That means I store far too much and throw to little of clothes that have come out of fashion or become to small or are to much used. 

Ég tók mig því til um helgina og dró fram peysu sem hefur legið hjá mér í nokkurn tíma og ákvað að sauma púðaver úr henni.
This weekend I pulled out a sweater (of my stash of old clothes) and decided to sew a cushion.

Ég klippti hana í sundur og bjó mér síðan til skapalón sem var 12*12 cm í þvermál. Saumfarið var 1 cm svo ég miðaði við að fá búta sem voru 11*11 cm að stærð þegar búið var að sauma þá saman.
I cut the sweater apart and made ​​me a squares that were 12 * 12 cm. in diameter. After sewing the squares together the pieces were 11 * 11 cm in size.

Allt var notað.
Almost every pice of the sweater was used. 

 Svo var sest við að sauma bútana saman.
 And then there was some sewing to do.


Ég komst að því að ég átti ekki rennilás til að sauma í púðann svo ég bjargaði mér með böndum sem ég hef klippt af peysum og bolum sem ég hef keypt (sem eru notuð til að flíkurnar renni ekki af herðatrjánnum í búðunum).
I discovered that I did not have a zipper to sew to the cushion, so I decided to use some bands I've cut of sweaters and T-shirts that I've bought (used to prevent the garments from slipping off the clothes hangers).


Önnur hliðin er úr jöfnum ferningum og eru þeir 4 * 4 og stungnir út með bleikum tvinna. 
One side is made of equal squares and they are 4 * 4 and decorated with pink thread.
 Hin hliðin er úr óreglulegum bútum því þá var ég að nýta það sem eftir var og eru þeir 8 cm breiðir og mislangir. Efst þurfti ég síðan að nota stroff sem var í kraganum því peysan sjálf dugði ekki til.
The other side is made of irregular pieces that I cut out of what was left of the sweater and they are 8 cm wide and different in length. I had to use the rib collar on top of my sewing because I had no more material of the sweater available. Every scrap used.


Og tada, flottur púði kominn í stólinn og ef hann skitnar út er ekkert annað að gera en að setja hann í þvottavélina því hann þolir það mjög vel :-) 
And tada, classy chair cushions is ready for use and if it gets dirty I can just throw it in the  washing machine because it can handle it very well :-)

mánudagur, 25. júlí 2011

Endurvinnsla

er skemmtileg. Stundum vakna fínar hugmyndir sem hægt er að láta verða úr.
To recycle is fun. Sometimes you get a good idea to work with.
Alltaf þegar ég hef sett gallabuxur í endurvinnlsu finnst mér grátlegt að henda þessu fína hráefni sem ónýtar gallabuxur eru.
Always when I throw jeans away I feel bad about throwing that nice material instead using to make something.
Einn daginn fékk ég þá hugmynd að klippa þær niður og búa til teppi úr þeim.
One day I got the idea to cut old jeans down and make blanket out of them.
Ég safnaði gallabuxum af fjölskyldumeðlimum í nokkurn tíma og klippti niður í ræmur. Allar ræmurnar eru jafnbreiðar en mislangar, alveg frá því að vera nokkrir sentimetrar í að vera næstum á lengd við hálfa buxnaskálm.
I gathered old jeans from the family and cut them down. Those cutdowns were the size of a brick but different in lengt.
Ég saumaði ræmurnar saman og núna er komið þetta líka fína rúmteppi fyrir frumburðinn.
I sewed the strips together and made a bedspread for my firstborn. So the old jeans got a afterlife and are doing well to cower the bedsheets when there are roomfill of teenagers wisiting.
Ég tók mig líka til um daginn og málaði útidyrahurðina að innan verðu. Hún var svarbrún á litin og andyrið alltaf frekar dimmt fannst mér vegna þess. En nú er hurðin orðin hvít og allt annað að koma inn, svo miklu bjartara þó það sjáist ekki vel á myndinni.
I also painted my outdor on the inside. The colour was darkbrown and therefore rather dark to enter the hall. But now the doors are white and so much brighter to enter my home ewen thou it dosen´t show in the photo.

fimmtudagur, 21. apríl 2011

Og þá koma páskar

Fyrir rúmlega ári síðan pantaði ég þennan dúk, sem kallast Kjúllakrútt, af síðunni föndur.is ( http://fondur.is/ ).

Ég setti allt í gang og byrjaði á verkefninu.


Það var skorið, myndin dregin upp á flisofix, straujað og saumað.

En svo brustu páskarnir á án þess að ég næði að klára myndina. Það tók nefnilega frekar langan tíma að handsauma myndirnar, sérstaklega þar sem það var stundum ansi þykkt að stinga í gegn og fingurnir urðu aumir. Verkefni fór því í geymslu.

Núna rétt fyrir páska mundi ég eftir dúknum og ákvað að klára hann. Ég kláraði að sauma út í myndirnar og breytti reyndar frá munstrinu því ég ákvað að nota liti sem pössuðu vel við efnið en ekki svart garn í allan sauminn.
Dúkurinn kláraðist og prýðir nú borðstofuborðið. Ég er ótrúlega montin af honum, sérstaklega þar sem þetta er fyrsta, stóra verkefnið sem ég ætla að eiga sjálf. Ég hef gert teppi og myndir en gef allt frá mér og á því ekkert bútasaums sjálf eftir mig (nema 2 myndir sem ég gerði þegar ég var að byrja í þessu og er ekki viss um að ég láti þær hanga uppi).

Svona lítur hann út.
A year ago I bought the materials and formats for this Easter fabric. I did not finish it then so I put it in storage. A few days ago I took it out again and decided to finish it for Easter. And this is how it looks like. I am very happy with it and now it decorates the diningroom table at my home.