Nú er aldeilis orðið langt síðan síðast. Er að spá í hvort það borgi sig að byrja að blogga aftur eða hvort Instagram sé málið. Ég ákvað alla vega að setja þetta inn til að virkja bloggið aftur og týna því ekki.
Ég ákvað að setja inn myndir af dásamlega garninu sem ég keypti á síðasta Garnivali. Og einn lítill úrsaumspakki sem ég á enn eftir að sauma út. Ég er búin að prjóna úr einhverju af garninu svo það er ekki bara keypt til að klappa þó svo að mér finnist það næg ástæða til að kaupa garn.
No comments:
Post a Comment