Thursday, October 15, 2009

Kanína

Þá er kanínan sem ég var að prjóna handa HB tilbúin. Það er búið að taka ansi laaaaangan tíma að klára hana.
Strípuð lítur blessunin svona út.
En þar sem ekki þótti við hæfi að hafa hana svona bera fékk hún bleikan kjól og ég lærði að taka betri myndir. Furðulegt að það skuli þurfa að stilla myndavélar svona. Mér finnst að þær eigi að vera imbaprúfar og ég þurfi bara að súmma inn og smella af.

Svaka fín en ekki alveg í fókus.

Stoltur eigandi ( sem er að prjóna skó á kanínuna sína ). Þetta eru 2 sætar saman.
Kanínan og babúskan.
Uppskriftina fékk ég í bók sem heitir Knitted Toys og er eftir höfund sem heitir Fiona McTague. Ég hef prjónað stærri kanínu úr sömu bók og var hún ekki síðri en þessi. Mér finnst frekar gaman að prjóna svona fígúrur svo nú verð ég að finna mér nýja og passa að vera ekki eins lengi og ég var með þessa.

5 comments:

  1. Glæsileg. Þú ert svo mikill snillingur. Annars var ég svo inspired af blogginu þínu að ég ákvað að endurvekja gamla bloggið mitt. Skrapp og daglegt líf haha. Allt gert til að Noregsfararnir fái að fylgjast með því sem er að gerast hér.

    ReplyDelete
  2. Hvaða slóð er á bloggið þitt?

    ReplyDelete
  3. Langar þig ekki að prjóna aðra svona kanínu handa litlu sætu frænku þinni :-)

    Kveðja frá Noregsförunum

    ReplyDelete
  4. Það er aldrei að vita hvað ég geri.....

    ReplyDelete
  5. http://kaelivara.blogspot.com/

    Þetta er svipað. Myndir og texti.

    ReplyDelete